Tuesday, April 8, 2008

Atorkuleysi

Dóra S. Bjarnason kennir og kallar nemendur framar í salinn, eins framarlega og mögulegt er (að undanskildum fremsta bekk en þar sátum við Gestur og hjá okkur þora nemendur ekki að sitja). Gott hjá Dóru. Ég efa það ekki að það hafi aukið um einhver prósent þá athygli sem nemendur veittu fyrirlestrinum. Dóra er nokkuð lifandi og þokkalegasti fyrirlesari sem tengir efnið mjög vel við raunveruleikann sem ætla mætti að þessir nemendur kynnu að meta. Dóra reyndi að fá viðbrögð frá nemendum. Það var eins og reynt væri að draga fram sakarjátningu hjá saklausum manni. Á endanum segir einhver eitthvað og Dóra fyllir upp í, því atorkuleysi nemenda er ekkert annað en vandræðalegt. Nú kynni einhvern að gruna að ég sé óþarflega neikvæður og sjái bara það neikvæða og áhugaleysi nemenda (sé hreinlega kominn með það á heilann). Slíkri ásökun verð ég því miður að vísa á bug því áhuguleysi nemenda er áhugavert af þeim sökum að það er fráleitt útbreiddur vandi.

No comments: