Monday, March 3, 2008

Uppbygging fyrirlestra

Fyrirlestur Gests var dæmigerður hvar hann talaði um kenningar samfleytt í gegnum allan tímann með smá hléi. Hljómburðurinn í fyrirlestrarsalnum (Skriða) er ekkert spes og Gestur talaði í hljóðnema. Gestur er ágætur fyrirlesari en var ekki að kveikja í nemendum með þessum fyrirlestri. Sjálfur tel ég að fyrirlesarar þurfa að vera þeim mun betri til þess að kveikja í nemendum í stórum fyrirlestrarsölum. Uppbygging fyrirlestursins var of spírölsk til þess að halda athygli nemenda. Hvað á ég við með spírölsk? Gestur tekur fyrir eitt atriði og kemur síðan að því aftur á hærra stigi og hefur þá fléttað saman öðrum hugtökum. Nemendur í þessum hópi eru rétt svo að átta sig á hugtökunum og varla það þar sem fæstir hafa líklega lesið heima. Fyrirlestrar njóta ekki mikillar virðingar í kennslustofum. Nemendur bera ekki virðing fyrir þeim sem er að tala. Ég geng með þá ímynd í höfðinu að svo hafi verið í gamla daga en mögulega er það misskilningur af minni hálfu. Það breytir þó ekki því að þannig á það að vera að nemendur sýni fyrirlesara virðingu. Gestur mætti tala hraðar svo nemendur ættu jafnvel pínulítið erfitt með að halda þræðinum – mig grunar að það gæti hjálpað þeim að fylgjast með. Vandamálið hjá mér þegar ég held fyrirlestra er ekki að nemendur fylgist ekki með heldur að þeir eigi jafnvel erfitt með að fylgja mér eftir. Það er skárra vandamál en hitt.

No comments: