Wednesday, February 20, 2008
Power Point
Mér datt allt í einu í hug punktur sem það getur vel verið að ég hafi sett fram einhvers staðar áður en hann er alla veganna eitthvað á þessa leið: Mig grunar að það að setja niður heilar setningar í Kraftbendli (Power Point) hafi dragi úr hugsun nemenda og að eitthvað, í námslegum skilningi, gerist þegar nemendur verða sjálfir að mynda setningar í kringum stikkorð (sem var það eina sem var sett á krítartöflur hér áður fyrr). Nemendur verða að tengja saman það sem kennarinn segir við stikkorðið. Núna þurfa nemendur ekki einu sinni að gera þetta vegna þess að kennarinn er búinn að því á glærunni. Ég benti Gesti á þetta og hann var sammála og sagðist hafa lagt upp með það fyrir löngu að hafa lítið á glærunum en einhvern misst stjórn á þessu með tímanum. Í kjölfarið skar hann niður textann á öllum glærunum áður en hann notaði þær aftur fyrir annan hóp.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment