Thursday, February 7, 2008

Kynningarfundur í MH

Nú man ég ekki nafnið á kennaranum er kynnti MH fyrir mér. Meðaleinkunn nemenda sem komast inn í MH úr grunnskóla er tiltölulega há eða um 8; skólinn er því fyrir afbragðsnemendur. Skólinn er heldur stór fyrir minn smekk eða um 1150 nemendur sem getur leitt af sér vandamál þegar kemur að því að mynda skólamenningu og skólaanda. Skólinn hefur laðað að sér nemendur með listræna hæfileika um árabil og bera veggir skólans þess merki - sem er afar skemmtilegt. Íþróttaaðstaða skólans var engin en nú hefur verið bætt úr því með tveimur íþróttasölum og skvasssal - sem er frábært. Einnig er þar tækjasalur líkt og unga fólkið nú til dags stundar (einstaklingsíþróttir fyrir einstaklingshyggjufólkið). Okkur var tjáð að kennarar sem byrja við MH hætti sjaldan störfum þar og var það til marks um ágæti skólans. Ég spurði kynningarfulltrúann hvað sé að skólanum eftir lofræðuna sem haldin var og þóttu mér svörin heldur fátækleg og ótrúverðug - bara það að nemendur læra ekki heima og álag hafi aukist á kennara (sem er almennt vandamál í skólakerfinu). Bókasafn skólans var mjög glæsilegt á að líta og virtist öll aðstaða í skólanum vera til fyrirmyndar. Kennarar hafa eigin aðstöðu sem virtist fremur þröng öll eins og venja er í íslenskum skólum. Fengum ekki að sjá nýja aðstöðu fyrir kennara. Ég veit ekki nákvæmlega af hverju en mig grunar að MH sé besti eða í það minnsta skásti framhaldsskóli landsins. Það er eitthvað við skólamenninguna þar sem heillar mig; en ég hef alls ekki nægileg gögn til þess að staðfesta þennan grun minn.

No comments: