Tuesday, February 12, 2008
Tilraun um áhuga
Gestur Guðmundsson kennir, flytur fyrirlestur um kenningar Bourdieu. Við Gestur tókum okkur saman og ákváðum að gera smá tilraun. Ég settist aftast og átti að fylgjast með því hversu margir voru að fylgjast með og glósa í bækur eða á tölvurnar sínar. Viðföngin eru kennaranemar og af einhverjum ástæðum geri ég enn ríkari kröfur til þeirra um að standa sig í skóla og leggja sig fram. Kannski er ég eitthvað skrýtinn því niðurstöður rannsóknarinnar voru sláandi. Innan við helmingur var að glósa, nokkrir voru að glósa í bland við annað og nokkuð margir voru að gera eitthvað allt annað. Spjallforritið MSN var mjög áberandi, póstforrit, Uglan, Barnaland, Leikjanet, uppfærslur, fasteignavefur mbl.is og svo framvegis. Nemendur spjalla saman. Það leggst enginn fram á borðið eins og ég varð vitni að í áhorfi mínu í FG en margir eru ekki að fylgjast með. Sumir taka ekki upp námsgögn. Ég endurtek: Kennaranemar. Flettingum á mbl.is myndi fækka stórlega ef lokað væri fyrir aðgang að lýðnetinu í kennslustofum landsins. Margir nemendur eru með störu út í loftið. Kannski 10 nemendur af 50 sem eru að fylgjast með eins og maður vildi að nemendur gerðu í fyrirlestri. Mjög svipaður strúktúr eftirtektar í þessum hópi og í framhaldsskóla, sem er ekki gefið því að öllu jöfnu ætti eitthvað að síast út af nemendum sem hafa ekki áhuga á bóklegu námi við lok menntaskólans. Sem og mögulega gerist, samanber að enginn er sofandi fram á borðið. Í leikhléi spjölluðum við Gestur saman og eftir hlé var nemendum greint frá niðurstöðum rannsóknarinnar. All margir hausar snéru sér við og litu vandræðalega á nýja kennarann sem sat aftast með alvarlegan svip á andlitinu. Sumir voru hreinlega skömmustulegir. Gestur var ekkert að skammast í nemendum og sagði þeim full ljúflega að mínu mati frá því hversu léleg þau væru í því að fylgjast með og nýta sér kennslutímann. Það varð breyting eftir hlé þar sem nokkuð fleiri fylgdust með af athygli. Langtum frá allir þó. Merkilegast þótti mér að sjá að nokkrir héldu áfram að spila tölvuleiki eða vinna annað í tölvum sínum, jafnvel á meðan Gestur gerðir grein fyrir því að það væri nú ekki nógu gott og að við værum búin að koma upp um þau. Litu ekki einu sinni upp og héldu svo áfram allan seinni tímann án þess að gefa fyrirlestrinum nokkurn gaum. Stórmerkilegt og svo augljóslega stærsta vandamál skólakerfisins, það er að segja hvursu margir klukkutímar fara til einskis, kennslufræðilega séð.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment