Monday, October 1, 2007

Heimaskólinn minn: FG

Það fór svolítill tími í það að kaupa mér inniskó. Á endanum fann ég þá sem mig langaði í. Þeir voru ekki ódýrir miðað við fjárhaginn sem ég bý við. Ég fann ekki stað til að geyma þá í FG og geng því með þá í tösku á milli staða. Ég er ekki alveg búinn að ná þessu með inniskóaskólann - húsnæðið er einhvern veginn of stofnanalegt og of lítið heimilislegt til þess að ég sjái alveg kostinn við þetta. Mögulega hefur þetta áhrif á stemmninguna.

Sem minnir mig á umræðu um arkítektúr og menntun. Ég held að rými hafi talsverð áhrif á andrúmsloft í skólum og þau hlutverk eða stellingar sem við setjum okkur í. Ég hef til dæmis prófað að kenna sama námskeiðið við HÍ í stofu 101 í Odda og svo í Sal 3 í Háskólabíó og munurinn er fráleitur. Það var ekkert spes stemmning í Odda 101 en þar náðust þó smá tengsl milli mín og nemendanna, rétt eins og í Árnagarði 301 (sem heldur er ekkert spes hvað þetta varðar). En í Sal 3 í Háskólabíó er bara allt dautt. Það eru örfáir að fylgjast með þar og andrúmsloftið er þungt - ekki beint þetta síkvika og hugmyndaríka akademíska umhverfi sem maður vonast eftir.

Kennslustofurnar í FG eru augljóslega skárri en eru samt uppsettar (þessar örfáu sem ég hef séð) eins og þar séu fluttir fyrirlestrar af kennurum og nemendur taki við upplýsingum. Ekki beint sú starfskenning sem ég hef hugsað mér að vinna eftir.

Aðalbjörg er rosa fín og þægileg í samstarfi. Jákvæð og góðleg með eindæmum.

No comments: