Það vantaði betri skýringar um hver viðmið við mat á verkefninu væru. Mér leið eins og sérfræðingakennaranum sem treystir sér ekki til að undirbúa sig á 30 mínútum til að kenna bekk sem hann þekkir ekki. Ég gat aldrei sagt frá í svona stuttu máli hver starfskenningin mín er. Ég ákvað eiginlega strax að skrifa í þessum skáldlega, meðvitaða heimspekistíl því hann að mörgu leyti endurspeglar hvernig ég mun kenna og þá hugsun sem ég vill koma til skila.
Hinn stíllinn sem ég velti fyrir mér að nota var hinn tæknilegi og hefðbundni vísindastíll. Að tína til og telja upp þær heimildir, þær stefnur og kenningar sem liggja að baki starfskenningunni minni. Skila inn viðauka um hugmyndir mínar um námsmat og svo framvegis. Ég geri ekkert annað en að skrifa þessar tæknilegu greinar og hef eiginlega svikið sjálfan mig með því að brjóta ekki vísindaritgerðarformið upp nægilega oft. MA-ritgerðin mín verður alltof hefðbundin. Kannski ég reyni að brjóta hana upp héðan í frá, að minnsta kosti hvað varðar formgerð hennar.
Annars er afar skynsamlegt og gagnlegt að gera starfskenningu. Eins og Guðrún nefndi í tíma er fylgni milli starfskenningar (sérstaklega hinnar ómeðvituðu) og þess hvernig maður kennir. En eins og ég benti á í starfskenningunni minni er mikilvægt að hafa í huga grundvöllinn og þekkja margar starfskenningar, geta borið saman til að velja. Velta fyrir sér og hugleiða hvað séu góð svör og hvernig þau eiga að vera. Er hægt að hafa 5 bls. starfskenningu? Er ekki verið að kenna nemendum metnaðarleysi í starfskenningu með því að gefa í skyn að henni megi koma fyrir á 5 bls.? Spurning. Ég held að það mætti fara mun dýpra í þetta og ætti hreinlega að fara í þetta í sérstöku námskeiði. Sögu starfskenninga og ólíkar starfskenningar og hvernig megi ná markmiðum ólíkra starfskenninga sem best. Í raun þarf maður að kunna margar starfskenningar til að geta leyst margvísleg mál í skólastarfi (það eru ekki allir nemendur og hópar eins - hvað þá viðfangsefnin!).
Monday, October 1, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment