Samstarfið milli mín og Hjalta gekk rosalega vel. Við eigum mjög auðvelt með að vinna saman, báðir frekar bjartir og léttir í huga hvað varðar verkefnið en samt metnaðarfullir. Ég finn það eftir því sem ég vann meira í verkefninu hvað mann vantar empíríska reynslu til þess að vita hvað virkar og hvað ekki fyrir þennan aldurshóp. Eða: Mig vantar upplýsingarnar um nemendahópinn til þess að ákvarða hvernig verkefnið á að vera. Svo er verkefnið svolítið hugsað eins og það séu tveir kennarar með 20 nemenda hóp um það bil en ekki einn kennari með til dæmis 25 nemendur. Við slíkar aðstæður kynni þetta verkefni að reyna verulega á kennarann. Svo grunar mig að verkefnið sé svo umfangsmikið að það verði í raun að fela meira efni í sér.
Ég er spenntur að heyra athugasemdir frá samnemendum mínum.
Monday, October 1, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment