Hafþór kom og fjallaði um námskenningar. Þessi tími var alltof alltof léttur. Það var ekkert í honum sem ég hafði ekki heyrt áður varðandi námskenningar, og kenningarnar grunsamlega einfaldar - þekkingarkassar fyrir utan fólk eða hugsmíðar í höfðum fólks eða samvinnuframleiðslu í gegnum félagsleg samskipti. Ekkert greint frá hvernig þessar kenningar virka, hvernig þær séu prófaðar og svo framvegis. Kennslustíll Hafþórs var einfaldur og kannski full góðlegur, á köflum fannst mér eins og hann væri að tala við óvita. Mögulega var það vegna þess að mér þótti umfjöllunin svo fráleitt einföld. Áróðurinn fór heldur ekki á milli mála. Einföld myndbrot sýnd til stuðnings sjónarhorni Hafþórs, sem ég styð og er sammála.
Þegar fjallað er um þessar námskenningar færi betur á að skoða akademískar greinar sem endurspegla þær orðræður sem eru í gangi um nám og kennslu. Þessi kynning var nægilega einföld til þess að hvaða leikmaður sem er gæti skilið. Það er ekkert að því að gera meiri kröfur til háskólamenntaðs fólks og verðandi kennara.
Monday, October 1, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment